Ágústa Guðrún Ólafsdóttir

Ég hef haft áhuga á ljósmyndun síðan að ég var í barnaskóla þar var ég í ljósmyndaklúbb og lærðum við að framkalla filmur setja í stækkara og varpa á pappír, má segja að grunnurinn hafi verið lagður þar. Árið 1988 var ég að vinna við sumarbúðir barna að kenna á tölvur. Ég tók einnig myndir af börnunum og framkallaði þær sjálf, þar kom sér vel að hafa verið í ljósmyndaklúbbnum í gamla daga þar sem grunnurinn var lagður. Eftir hverja viku var gefið út blað með myndum af krökkunum við leik og störf.
Ég hef notað hvert tækifæri að taka myndir af börnum mínum. Þau voru ekki alltaf áhugasöm að stilla sér upp og brosa(stundum búin að fá nóg). Elsti sonur minn sagði við mig þegar hann var 27 ára “mamma mér finnst ekkert gaman þegar þú ert að taka myndir af mér en það er alltaf gaman að skoða þær eftirá” Það sagði mér allt:) Núna eru barnabörnin mín tekin við því hlutverki að sitja fyrir.
Fyrir nokkrum árum fór ég að læra listmálun. Kennarinn fór með okkkur í útiferðir til þess að taka myndir af því sem við vorum að mála. Þarna vaknaði ljósmyndaáhuginn á ný, ég fór að horfa öðruvísi á allt í kringum mig taka annarskonar myndir en ég hafði verið að gera og reyna að fanga rétt augnablik við ýmsar aðstæður. Fyrst tók ég aðalega landslagsmyndir og núna myndir af fólki meðal annars í studíói og bara öllu í kringum mig. Ég er með sölusíðu á netinu sem er http://fineartamerica.com

Skoðaðu myndirnar mínar á Flickr.com Ég er líka á Facebook