Ég fæddist og ólst upp í Bandaríkjunum og flutti til Íslands 8. janúar árið 2000. Ég er búinn að vera áhugaljósmyndari í um það bil 22 ár. Mér finnst skemmtilegast að mynda náttúru og er yfirleitt tek ég myndavélina með mér þegar ég er úti að ganga, veiða eða hjóla.
Fyrir nokkrum árum fattaði ég að ég átti fáar myndir af fólki og ákvað að læra að taka myndir af fólki líka. Ég gerðist meðlimur í Ljósop til þess að læra af öðrum og að breikka sjón mína á ljósmyndun. Ég sé ljósmyndun sem eina leið til að vekja athygli fólks á heiminum í kringum okkur og fegurðina sem þar er til. En ljósmyndun er líka ein leið fyrir mig til þess að sýna persónuleika minn.
Ég er giftur og á 3 börn. Ég er sjávarlíffræðingur og vinn hjá Hafró.