Hæ, ég heiti Guðbjörg Ylfa Jensdóttir, kom í heiminn árið 1993 og er fædd og uppalin í Reykjanesbæ.
Ég hef haft áhuga á ljósmyndun í svolítinn tíma núna og er að stunda nám við Ljósmyndunarsérsviðið í Tækniskólanum. Áhuginn hjá mér kom mest í ljós þegar ég tók eina önn í Menntaskólanum á Egilsstöðum en þar fór ég í einn ljósmyndaáfanga, ég lærði á bæði digital og filmu vél og fannst það mjög gaman, eftir þá önn sótti ég um í grunnnáminu í fjölmiðla- og upplýsingafræði, fór svo í grafíska miðlun og er nú í ljósmyndun.
Mitt framtíðaráform er að fara erlendis í skóla og opna svo stofu þar sem ljósmyndun og hönnun verður í boði.
Sú tegund af ljósmyndun sem mér finnst mjög skemmtileg er tískuljósmyndun, myndir í auglýsingar og filman hefur sinn sjarm.
Ljósmyndarar sem ég hef litið mikið upp til eru Annie Leibovitz, Mary Ellen Mark, Henry Cartier, RAX og fl.