Heiðbrá Steinþórsdóttir

Heiðbrá heiti ég og er heimavinnandi 5 barna móðir frá Akureyri, flutti til Keflavíkur árið 1998.
Ég hef mikinn áhuga á ljósmyndun og Photoshop. Eignaðist fyrstu alvöru myndavélina 2008 og er alltaf að læra eitthvað nýtt bæði í ljósmyndun og photoshop, gerðist meðlimur í Ljósop í nóvember 2010 og þar lærum við helling af hvort öðru.

Mér finnst gaman að taka allskonar myndir en hef þó sérstaklega gaman að macro ljósmyndun.

Ég nota canon 7D og uppáhalds linsan mín er 60mm macro f/2.8

Skoðaðu myndirnar mínar á Flickr.com Skoðaðu myndirnar mínar á 500px.com Ég er líka á Facebook