Katrýn Sigrún Ágústsdóttir

Hönnun og list er eitthvað sem ég hef haft rosalega áhuga á frá því ég man eftir mér. 7 ára gömul ákvað ég að verða arkitekt en þeir draumar hafa breyst í dag. Ég hef haft áhuga á ljósmyndun mjög lengi en það var ekki fyrr en árið 2007 þegar ég fékk mína fyrstu vél að ég fór að taka myndir í mínum frítíma. Ég er útskrifuð úr Verzlunarskóla Íslands og var þar í ljósmyndanefnd skólans. Þar lærði ég margt sem tengist ljósmyndun og fékk að taka mikið af myndum fyrir blöð skólans. Ég hef annars aðalega verið að taka myndir fyrir sjálfa mig eða fyrir mína nánustu.

Tískuljósmyndun er það sem heillar mig mest, en á eftir því koma myndir sem tengjast börnum.

Ljósmyndarar sem ég lít upp til meðal annarra eru Tim Walker og Annie Leibovitz.

Ég væri til í að læra ljósmyndun en hafa það samt sem áður aðeins sem áhugamál.

Skoðaðu myndirnar mínar á Flickr.com Ég er líka á Facebook