Áhuginn á ljósmyndun byrjaði mjög snemma, eða um 8 ára aldurinn. Var yfirleitt með uppsett myrkraherbergi sem krakki og fram á unlingsaldurinn, eyddi þar ómældum tíma við framköllun og stækkun á myndum.
Var félagi í Ljósálfum sem seinna varð ljósmyndaklúppurinn Fókus í Reykjavík. Um nokkra ára skeið var ég með ljósmyndanámskeið á vegum ÍTR fyrir nemendur í Hagaskóla. Smá lægð kom í ljósmyndadelluna um tíma, en við digitalvæðinguna kom áhuginn aftur að fullum krafti. Hef mestan áhuga á portrait og fine art ljósmyndun.